Af hverju að velja Kríta?
Fljótleg og örugg fjármögnun
Fjármögnun reikninga hjá Kríta er hraðvirk og einföld leið fyrir þitt fyrirtæki að fá aðgang að fjármagni. Við fjármögnum allt að 88% af reikningsupphæðinni.
Sparaðu tíma og fjármuni
Fjármögnun reikninga hjá Kríta gerir þér kleift að stýra fjármunum fyrirtækis þíns betur og nýta tækifæri til aukinnar hagkvæmni í rekstri.
Jákvæð áhrif á viðskiptasambönd
Fjármögnun reikninga hjá Kríta gefur þínu fyrirtæki möguleika á að veita viðskiptavinum lengri greiðslufrest án neikvæðra áhrifa á lausafjárstöðu þína.

Spurt og svarað
Hvað er Kríta?
Kríta er nýtt fyrirtæki á íslenskum markaði og sérhæfir sig í fjármögnun reikninga. Straumlínulagað ferli Kríta gerir þér kleift að stýra fjárstreymi fyrirtækis þíns á hagkvæman hátt.
Sæktu fjármagn þegar þér hentar – með Kríta.
Hverjum hentar þjónustan?
Þjónustan hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum að því gefnu að þau stundi reikningsviðskipti á Íslandi og upfylli áhættumat Kríta.
Hvað kostar þjónustan?
Kostnaðurinn við þjónustuna er breytilegur og tekur mið af áhættumatsferli Kríta.
Þú færð nánari upplýsingar hjá ráðgjöfum okkar í síma 419-5800.
Hvernig kem ég í viðskipti?
Undanfari viðskipta er undirritun viðskiptasamnings við Kríta og uppsetning viðskiptavinar í kerfum fyrirtækisins.
Vinsamlegast hafðu samband í síma 419-5800 eða sendu okkur fyrispurn á vefnum.
Hversu langan tíma tekur að fá fjármögnun?
Að loknu uppsetningarferli Kríta er fjármögnun að jafnaði tiltæk samdægurs.
Hvernig fæ ég fjármögnun?
Reikningar fyrirtækis þíns eru sýnilegir í vefviðmóti Kríta. Þú velur þá reikninga sem að þú vilt fjármagna og við gerum þér tilboð.
Því fylgir engin skuldbinding að óska eftir tilboði.
Fjármagnið þið alla reikninga?
Kríta fjármagnar reikninga sem upfylla kröfur áhættumatsferlis Kríta.
Hvað gerist ef greiðandi reiknings greiðir ekki?
Ef greiðandi reiknings greiðir ekki á eindaga, er viðskiptavinur Kríta upplýstur og gefinn kostur á endurfjármögnun eða uppgjöri með öðrum hætti.
Eru falin gjöld?
Nei. Kríta leggur áherslu á gagnsæi og vill tryggja að viðskiptavinir séu að fullu upplýstir um kostnaðinn við þjónustuna.
Hefur þjónusta Kríta áhrif á viðskiptasamband mitt við greiðanda?
Nei, við teljum svo ekki vera. Fjármögnun reikninga er öflugt og vel þekkt verkfæri við fjárstýringu fyrirtækja.
Hvaða atvinnugreinar þjónustar kríta?
Kríta þjónustar allar atvinnugreinar en sem dæmi má nefna þjónustum við:
